07október

Fagnađarerndi Rússlenska Sambandsins

Fjármálakreppan sem skeikað hefur um heiminn undanfarnar vikur tók sig verulega fótsessu hérna á Íslandi og þegar okkur vantaði fjáraðstoð til að bjarga okkur úr þessum vanda þá voru fá svör frá þeim sem við köllum vini okkar eins og Bretland, Bandaríkin og Þýskaland. Þeir hreinlega vildu ekki koma nálægt okkur eins og við værum eitthver farsótt sem gæti sýkt þá.Soviet Union Flag

Hverjir komu þá til hjálpar?

Jú, fagnaðarerindin berast frá Rússlandi (Russin Federation). Pútín og hans samstarfsmenn voru ólmir að koma okkur til bjargar og henda í okkur hundruðum milljarða, enda hvers vegna ekki, við erum hreint yndisleg þjóð.

Þannig ég legg til þess að við berum undir fagnaðarerindið að vera orðnir varanlegur hluti af Rússlenska veldinu.
Lengi lifi Rússland!
07. október 2008 klukkan 14:01
óli hertervig
2 athugasemdir
03október

Varaforsetadebatiđ (ÍSLenska)

Eftir að hafa horft á rökræðurnar milli Joe Biden og Söruh Palin þá fékk ég loksins þá niðurstöðu að Palin getur ekki hugsað fyrir sjálfa sig, ef það er enginn John McCain til að passa að hún segi ekki heimskulega hluti þá fer allt til fjandans. Næsta skref hjá McCain er að geyma Palin í kjallaranum (Alveg eins og Fritz gerði) þangað til það er komið að kosningadegi.
Heimskulegir hlutir og setningar sem Sarah Palin lét frá sér í gær:
- Hún blikkaði myndavélina tvisvar
- Hún svaraði aðeins spurningu beint tvisvar af 13 skiptum
- Þegar hún átti að veita mótsvar (valdi að taka mótsvar) yfir eitthverju sem Biden sagði þá tók hún oft þá leið að fara bara að tala um eitthvað allt annað sem hún vissi eitthvað um
- Fór algjörlega með rangt mál þegar hún talaði um utanríkisstefnu Obama/Biden
- Kallaði Joe Biden einu sinni O'Biden
- Þegar það átti að tala um utanríkismál fór hún og talaði um störf sín sem borgarstjóri og ríkisstjóri í Alaska (sem tengist voða lítið utanríkismálum þar sem það er fylki í landi, sem hún var ekki alveg að fatta)

Hlutir sem þarf víst aðeins að útskýra fyrir Söruh Palin:
- Alaska er ekki landtengt Rússlandi; Þrátt fyrir að þú hafi verið fylkisstjóri þar þá þýðir það ekki að þú hafir eitthverja reynslu af samskiptum við Rússland (Hún hefur aldrei hitt diplómata frá Rússlandi á ævi sinni)
- Mynd til hægri til að sanna mál mitt
- Það hjálpar ekki ekki að blikka myndavélina, við vitum alveg að þú ert GILF en þú færð ekki atkvæði fyrir að blikka myndavélina, það kemur bara út eins og þú sért fáviti að reyna það eða sért með eitthvern alvarlegan vöðvasjúkdóm sem lætur þig gera það.
03. október 2008 klukkan 18:59
óli hertervig
2 athugasemdir
05september

Thailand day 2

This day started good, hangover in the mornin' so we went straight across the street to McDonalds and had our breakfast, then we went to a 3 hour oil massage, it was awesome. Just brilliant in everyway, I'm so relaxed right now, i could just melt down to the floor, but we took alot of photos, we even went dancing on the bar table, and we have a video of that whole mess which is so going on youtube. But will keep you posted, going to start to drink now and go downtown for a rave.
05. september 2008 klukkan 13:55
óli hertervig
Engin athugasemd
04september

Thailand day 1

This is gonna be in english, cuz i don"t have an icelandic keyboard.
The long trip down here was about 28 hours, we flew with Qatar Airways which was just perfect, great seats, interactive tv's for every seat, hundreds of movies and tv shows.
We arrived here went and took a shower and hit the town, get really drunk, we started dancing on some poles, we just had a blast, I'll post some photos later, but we took a bunch.
And as I'm writing this blog here at a internet cafe, and icelander walked in, how funny is that.
Well gotta go, time almost up, but i'll keep you posted gonna go to a 3 hours massage now.
04. september 2008 klukkan 08:46
óli hertervig
Engin athugasemd
30ágúst

Hefđi getađ dáiđ

Var að labba úr vinnunni núna áðan framhjá Vodafonehöllinni á Bústaðavegi, þegar ég sé mann missa stjórn á bíl og keyra í áttina til mín á yfir hámarkshraða en svo keyrir hann á staurinn og hringsnýst og stoppar tíu metra frá mér.
Var þá byrjaður að hringja í 112 og svaraði einmitt félagi minn, útskýrði honum frá ástandinu og hvað hafi gerst, eftir að hafa talað við þá fór ég beint að bílnum og reyndi að hjálpa manninum að halda meðvitund en hann hafði slegist í framrúðuna og hliðarrúðuna enda var ekki í belti. Hélt áfram að spyrja hann spurninga meðan og reyna að láta hann svara sem hann átti erfitt með þar sem það flæddi of mikið blóð úr munninum á honum, hann var mjög illa meiddur með votfull augu og lyktaði af áfengi.
Ég gerði allt sem ég gat og kunnátta mín leyfði mér þangað til sjúkraliðar mættu á staðinn.
Sjúkraliðar voru komir innan mínútu enda var þetta alveg við Neyðarlínuna og byrjaðir að reyna að klippa út manninn með hjálp slökkvuliðs, þetta tók smá tíma enda maðurinn fastur eftir að bíllinn klesstist mikið. Hann var mikið vankaður og búinn að missa mikið blóð.
Ég vona nú að maðurinn sé á lífi en þetta var mjög harkalegt enda var hann að keyra mjög hratt þegar hann lenti á staurnum og var hann ekki í belti.
Smá sjokk á manni en...það er pizza til að róa mann aðeins niður.
Frétt á:http://visir.is/article/20080830/FRETTIR01/636700706
30. ágúst 2008 klukkan 21:18
óli hertervig
Engin athugasemd
22ágúst

Ţjóđin var stopp

Íslenski fáninnÞegar klukkan sló 12:15 á Íslandi í dag þá var fyrirfram ákveðið að stoppa
ætti næstum alla starfsemi sem átti sér stað, sjúkraflutningum var neitað, fólk sem var að kvarta undan ofbeldi við lögreglu var ekki svarað, fólk sem leitaði til barnaverndar var hreinlega vísað frá og bent að koma eftir landsleikinn.
Nei þetta eru nú allt lygar hjá mér en það var samt allt rólegt í samfélaginu á meðan leiknum stóð, þessi leikur var hreint ótrúlegur alveg frá upphafi með 5-0 byrjun (sem hefur hreinlega ekki sést frá íslenska landsliðinu lengi (nema á móti þjóðum eins og Bandaríkjunum sem geta hreinlega ekkert í handbolta).

Strákarnir eiga mikið hrós skilið eftir 36-30 sigur á einni bestu handboltaþjóð heims og er þessi dagur sá stærsti í íslenskri íþróttasögu til þessa og fer það hreint ekki á milli mála.

Þá er það bara að halda sér fullum til klukkan 7:45 á sunnudaginn þegar úrslitaleikurinn byrjar og fylgjast með leiknum eins og yfir 80% þjóðarinnar mun gera.

ÁFRAM ÍSLAND og stefnum á Ólympíugull og skella Spánverjunum það er alveg á hreinu !

Biturleikastig þessa bloggs: 0.0 af 10.0
22. ágúst 2008 klukkan 15:01
óli hertervig
Engin athugasemd
20ágúst

Íslenska landsliđiđ

Nei ég er ekki að tala um handboltann, núna ætla ég að röfla aðeins um íslenska fótbolta landsliðið.

Í fyrsta lagi: Afhverju í andskotanum er fitubollann hann Eiður Smári með fast sæti í liðinu?
- Hann er ekki að spila yfir 50% leikja fyrir liðið sitt
- Hann er ekki í góðu formi
- Hann er latur oft inná vellinumMynd af Eiði Smára að græða pening

Það eru margir ungir strákar í landsliðinu og í u-21 sem ættu að fá meiri séns ef ekki væri fyrir þessa fitubollu sem er bara einfaldlega ekki að standa sig, landsliðið er að spila mun betur þegar hann Eiður er ekki að spila, það er meiri liðsheild í gangi heldur en; "Hey sendum bara á Eið". Það er ekki taktík sem gengur fyrir neitt landslið, og sagan sýnir okkur það bara (Libería t.d. í kringum 1990). Við verðum að setja meira út á liðsheildina, heldur en einn mann.
Hver einasta staða á að vera laus og besti leikmaðurinn fær starfið
Einnig finnst mér það algjört lágmark að leikmenn sem eru í landsliðinu séu byrjunarliðsmenn í félagsliðum sínum (allavegna 70% af spiluðum leikjum).

Það er kominn tími til að leyfa Eið að sitja í kuldanum í nokkra leiki og einfaldlega segja við hann, að þegar hann byrjar að spila reglulega og vel fyrir félagsliðið sitt og sýna að hann eigi heima í landsliðinu þá fái hann að koma aftur inn í hópinn, en þangað til geti bara farið niðrí miðbæ og djammið í sínum bleika bol og látið sem hann sé stærri en aðrir.

Biturleikastig þessa blogs var: 7.7 af 10
20. ágúst 2008 klukkan 20:27
óli hertervig
Engin athugasemd
20ágúst

Áfram Ísland !

Hversu frábær var leikurinn áðan?
Hann var einfaldlega einn skemmtilegasti sem ég hef horft á lengi, maður hefur ekki séð landsliðið í svona formi síðan Siggi Sveins, Geir og Valdi voru að fara á kostum.
Björgvin á hreinlega skilið verðlaun fyrir framistöðu sína, hann var að sýna að hann getur verið í klassa með bestu markvörðum heims, með hreinlega frábæran leik í alla kanta, það vantaði ekkert uppá frammistöðu hans. Ég hef alltaf haldið því fram að við ættum góða möguleika á gulli ef að markvarsla landsliðsins kæmi eitthvertímann inn.

En ég fór beint eftir leikinn að lesa fréttir og viðtöl á netinu og fann eitt helvíti skondið á officail síðu Ólympíuleikana:
http://en.beijing2008.cn/news/sports/headlines/handball/n214567329.shtml

Þarna segja þeir að Hreiðar Levý hafi verið markvörðurinn sem var að verja eins og ljón, ég held að fólk ætti að horfa á leikinn áður en það fer að setja inn greinar um hann á official síðuna. Þetta finnst mér bara hreint skammarlegt, Björgvin ekki að fá creditið sem hann á skilið þarna.

En frábært hjá ykkur strákar, hreint ótrúlega sáttur með ykkur í alla kanta og "Twin Towers" hjá okkur (Ingimundur og Sverre) verða líka á fá eitthvað fyrir sitt effort en þeir voru hreint óhreyfanlegir í vörninni ásamt hinum smáa en knáa Alexander.

update: Ég sendi kvörtunarpóst á sports@beijing2008.cn og hvet fleiri til að gera það.

update2: Sko sagði ykkur að ég myndi finna mér eitthvað til að kvarta yfir Hlæjandi

update3: Þeir löguðu þetta sem ég sendi og báðust innilega afsökunar.
20. ágúst 2008 klukkan 11:40
óli hertervig
Engin athugasemd
20ágúst

Átak

Smá update út lífi Óla:
Þá er maður loksins byrjaður á að taka sig á, og þetta er svo sem allt að koma, byrjaður að hlaupa á hverjum degi 3km og svo ætla ég að hækka það um 200m í hverri viku og halda þessu áfram, þegar þetta er komið vel á skrið þá mun maður hafa þetta 4-5km annanhvern dag og svo í það sem vegalengdin er komin hinn daginn.
Svo byrjar maður að lyfta aftur svona hægt og hægt áfram, ætla að reyna að lyfta aðeins niðrá Neyðarlínu fyrir vinnu alltaf, taka svona létt 30min session á þetta.

Svo er bara vinnukaffiboð í nýja place-inu á morgun, djöfull verður gaman að leyfa fólkinu að sjá hvað ég og Fúsi erum búnir að gera við íbúðina hún er orðin nokkuð kósí.

Jæja, hvað get ég sagt, lífið er frábært, ég hef ekkert að kvarta undan neinu og allt er brilliant, ætli að bitursleika bloggin hans Óla séu alveg dottin út ? Nei það held ég nú varla ég á eftir að finna eitthvað sem að í samfélaginu og kvarta undan því hingað inn :P
20. ágúst 2008 klukkan 00:46
óli hertervig
Engin athugasemd
18ágúst

Lífiđ

Lífið er gott, það held ég allavegna.
Þegar ég vakna á þessum dýrindysmorgni í íbúðinni á Hjarðarhaganum þá er það fyrsta sem ég fatta að við sættum okkur við jafntefli gegn Egyptum í handboltanum, ég hélt við værum mun betri en þeir.

Það næsta sem ég uppgvöta er að ég á eftir að ganga frá öllu eftir matinn sem ég eldaði í gær, ætli maður verði ekki að rífa sig áfram til þess að ganga frá honum.

Ég held að mig hafi loksins tekist að kúra bangsann minn (Pablo, og já auðvitað á hann nafn) til dauða í nótt, þannig það á eftir að koma í ljós hvort hann sé á lífi.

Spurning hvað planið í dag sé, ætli maður taki ekki aðeins til hérna í íbúðinni, fari aðeins og versli, klári að gera tilbúið fyrir kaffiboðið hérna á miðvikudaginn.

Vá það er slatti sem maður á eftir að gera áður en ég fer út, það fer að styttast í þetta 2 vikur to go :P En svo á maður líka eftir að sakna fullt af fólki og hlutum hérna heim þrátt fyrir að maður sé að fara út. Ætla bara að vona að manni verði ekki rænt og settur í þrælkunarbúðir í Tjad eða eitthveru álíka lame landi.
18. ágúst 2008 klukkan 08:25
óli hertervig
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: óli hertervig
  • Netfang: hertervig@gmail.com
  • Stađur: reykjavík
  • Kyn: kk
  • Atvinna: securitas
  • Hjúskaparstađa: single
  • Um mig: a complex political and philosophic creature from the weird land of ice and snow
  • Annađ: i am...Sam?

Auglýsing

Könnun

Hversu lengi mun ég endast međ ţetta helvítis blogg í ţetta sinn?